Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 189 - Tóm Knús
29/06/2020 Duration: 01h23minHetjurnar okkar hittast yfir frelsisöli til að ræða um póstkví, blakkfeisoff, smitfaðmlög og Dale Carnegie handabönd og þessa óþolandi áráttu sumra til að vera stöðugt að gefa manni óumbeðin power move kreistuknús!
-
Hefnendurnir 188 - 28 dögum síðar
10/04/2020 Duration: 58minStrákarnir tuða um sitthvora innipúkaiðjuna úr sitthvorri sóttkvínni. Báðir öruggir og óbreyttir sökum þess að félagsfælin einvera er ekki beint ótroðin slóð hjá þessum sjóuðu njarðaprinsum sem kalla sig Hefnendurna. Stay safe, Jarðarbúar!
-
Hefnendurnir 187 - Þegar allt lék í lyndí hopp
10/04/2020 Duration: 44minÍ þessari ævafornu en samt bara 28 daga gamalli upptöku, ræða Hefnendurnir okkar um hva þessi vírus er sooo not all that. Svo tala þeir líka um hvað þeir hlakka til júróvision og hvað Outbreak er ómerkileg mynd. It was a different time.
-
Hefnendurnir 186 - Paradís lost
30/01/2020 Duration: 01h02minFeigðin hangir yfir Bíó Paradís og hræfuglar eru byrjaðir að hringsóla í kringum það eins og einhvers konar leigusalar. Hulkleikur og Ævorman taka svona fréttum ekki þegjandi, enda velunnarar og klappstýrur menningarjötunnar sem Bíó Paradís er. Nema Ævorman hljómar töluvert verr en Hulkleikur, vegna þess að hann er veikur og svo var einhver gaur að bora í næstu íbúð og allskonar.
-
Hefnendurnir 185 - Haltá Ketti
08/01/2020 Duration: 58minÆvorman langaði eiginlega bara að gera eitt í Berlín. Hann án djóks talaði eiginlega ekki um annað; Fara í bíó með Hulkleiki til að horfa á Cats. Og síðan að tala um það. Tala rosalega mikið um það vegna þess að það er furðulega mikið til að tala um. Þessi mynd? Þessi mynd!
-
Hefnendurnir 184 - Star Wars, maður
08/01/2020 Duration: 47minSkywalker sagan skráði sinn hinsta kafla samkvæmt Disney um jólin og Hefnendurnir okkar kíktu í bíó eins og öllum sönnum lærisveinum máttarins er ljúft og skylt. En hvað þýða ljúfsár endalokin um framhaldið? The force is dead and no one cares. If there is a mustafar I’ll see you there.
-
Hefnendurnir 183 - Party like it's neunzehnhuntertneunundneunzig
08/01/2020 Duration: 01h42minHulli flutti til Berlínar, en Ævorman er ekki af baki dottinn heldur lagði land undir fót og mætti heim til hullsubrauðsins til að gefa jarðarbúum góða byrjun fyrir Cyberpunk árið sem gengið er í garð. Afraksturinn er 3! (þrír) sjóðheitir þættir til að hámheyra, Netflix style! Hulkleikur og Ævorman eru búnir að vera seinir allt ár. Svo seinir að þeir koma með uppáhaldsmyndirnar sínar á síðasta ári tuttugu árum of seint í þessum marglofaða 1999 besta kvikmyndaár allra tíma™ þætti.
-
Hefnendurnir 182 - Annie Lennox prófið
04/09/2019 Duration: 01h24minHulkleikur og ÆvorMan eiga fund í Grímsson Tower og velta vöngum yfir ímynduðum boltaleikjum í ódæmigerðu lögregluríki, velja topp 2 kvikmyndir sem batna við mute takkann og veðja uppá flottann kall. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus. Það er svo best sko.
-
Hefnendurnir 181 - Manhattan ójafnvægið
27/08/2019 Duration: 01h15minHulli hinn hvíti og Ævar hinn grái hafa ekki fært á sér bossana síðan í síðasta þætti því þeir hafa bara og mikið að segja. Þar á meðal sitthvað um eigið sköpunarferli, emo ofurhetjur með daddy issues og leiðarlok Luke Perry. Við biðjumst velvirðingar á skruðningunum sem heyrast í þessari upptöku. Það er líklega bara draugur.
-
Hefnendurnir 180 - Bavíaninn sem át móður sína
21/08/2019 Duration: 01h22minEftir allt of langan dvala skríða tveir stírublindir Hefnendabangsar úr hýði sínu og ræða húmorsleysi Svía og sáðlát Aquamans og að sjálfsögðu rýna þeir eldfast í endalok mikilvægasta nördafyrirbæris síðari ára: Big Bang Theory.
-
Hefnendurnir 179 - Emil í Tjattholti
31/12/2018 Duration: 02h56minHefnendurnir fá Emil Hjörvar Petersen, veraldarsmið og örlagavefjara, í heimsókn og hefna hann spjörunum úr. Lengsti Hefnendaþáttur ever höldum við bara. Gleðilegt nýtt ár, Jarðarbúar!Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er í boði guðanna. Kjarninn í samstarfi við Storytel býður þér að hlusta frítt á þúsundir hljóðbóka í símanum þínum í 30 daga. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig á www.storytel.is/kjarninn og byrja að njóta. Storytel.is, þúsundir hljóðbóka í símanum þínum.
-
Hefnendurnir 178 - Neandercool
13/12/2018 Duration: 01h06minHefnendurnir fara tvisvar í bíó! Fyrst á garlakallamynd og svo á hjólhúsamynd! Það var nú aldeilis gaman. Í bílferðum sínum ræða þeir meðal annars um magíska munnkossa, ferðir Ted Dansons og örvar kúbids. Hefnendurnir eru í boði Himnaríkis… ég meina Nexus. Same thing.
-
Hefnendurnir 177 - Stan Lee er dáinn og þetta er þátturinn um það
28/11/2018 Duration: 01h28minHulli og Ævar minnast nýfráfallins skapara skaparanna og ná samt eitthvað að tuða um aðra hluti sem skipta minna máli. En það er náttúrulega bara eins og þeir eru.
-
Hefnendurnir 176 - Látum þá deyja eina
07/11/2018 Duration: 01h14minHulli hinn hvíti kíkir í heimsókn til Ævars hins gráa og þeir fara yfir samþykki Egils Ólafs, píslargöngu Ofurhugans og hlutlausa kjúklingavængi.Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus er aðal.
-
Hefnendurnir 175 - Díónýsus Kræst og Sigh Guy
31/10/2018 Duration: 01h16minHetjurnar okkar hittast á ný í hefnendahöfuðstöðvunum eftir heljarferðalag um heimsins lendur og henda í hugleiðingar um hrekkjavöku, Hicks og Hetjur til leigu, ásamt almennu húllumhæi. Hefnendurnirnir eru í boði Nexus, auðvitað.
-
Hefnendurnir 174 - Mandalórinn Tormelti
24/10/2018 Duration: 50minHulli og Ævar eru í sitthvorri heimsálfunni og ná engu sambandi við hvorn annann. En óttist eigi, Jarðarbúar fríðir, því Hefnendurnir luma nebblilega á ýmsu óáðurbirtu góðgæti. Þar á meðal bubblandi bíóferð á "rándýr"a mynd og babbl um Boba með Andreu Björk. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus > Allt.
-
Hefnendurnir 173 - Doktor Bacon
17/10/2018 Duration: 01h19minHugleikur heimsækir Andreu Björk og köttinn hennar í Berlín og þau ræða Saurugan Dexter, Sprungna eiturlyfjasmokka og Búning Blökukonunnar. Hefnendurnir eru í boði Nexus og Nexus er næs to the max.
-
Hefnendurnir 172 - Prancing Pony Part Deux
09/10/2018 Duration: 01h04minÞið eruð ennþá stödd á bar. Hulkleikurinn og Ævormanninn eru komnir í Irish Coffee og hætta ekki að láta gamminn geysa um sín hjartans mál. Og panta fleiri drykki.
-
Hefnendurnir 171 - The Prancing Pony
02/10/2018 Duration: 01h10minÞið eruð stödd á bar. Ævar “Dean Martin” Grímsson og Hugleikur “Scorsese” Dagsson sitja í einu horninu, sötra svart öl og ræða um tilfinningagáfur í dýflissum, klámmyndagláp á stefnumótum og kosti þess að vera með framheilaskaða.
-
Hefnendurnir 170 – Miðgarðsormarnir
25/09/2018 Duration: 59minÆvorman og Hulkleikur voru með live podcast á Midgard 2018 þar sem þeir ræddu um dag leðurblökunnar, undarlegar ofurhetjur og auðvitað hvort að Súperman sé með rassgat.