Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 169 - Thanos í Sumarhúsum
18/09/2018 Duration: 41minHulli og Ævar bregða sér saman í bíó til að ná Mission Impossible 6 áður en hún hættir í bíó. Á leiðinni þangað og til baka ræða þeir um tengsl Central Perk og Eterníu, skort á dúfnadauða í Woo myndum og raddmissi James Bond.
-
Hefnendurnir 168 - Slæmur Slaufu Slæmer
11/09/2018 Duration: 01h15minHullinn og Ævarinn hita upp fyrir midgard með masi um fréttir frá síðasta sumri, stafrænan spædermann, burtreiðar og endalok ævintýratímans.
-
Hefnendurnir 167 - Glápur og Skrápur
06/09/2018 Duration: 01h16minHetjurnar okkar halda áfram endurkomunni með spánýjum þætti þar sem farið verður yfir allt glápið sem gerðist og það sem að gerðist en aðallega glápið sem gerðist.
-
Hefnendurnir 166 - Antmansstígur
30/08/2018 Duration: 01h19minSumarfríð er búið! Hefnendur snúa aftur til jarðar! Ævar hinn myndarlegi og Hulli minnast sumarsins sem var að líða. Sem var basically bara Antman og Rigning. Við biðjumst velvirðingar á leininlegu hljóði sem er Hulla-megin þegar þeir eru að tala netleiðis við hvorn annan. Auðvitað Hulla-megin. Týpískt Hulli.
-
Hefnendurnir 165 - Mátturinn og slímið
06/06/2018 Duration: 57minHetjurnar okkar syngja sig inn í sumarfrí með söngvum sínum um ímyndaða vini, Harvey horrormyndir og frægðarbond, ásamt því að koma að töff skóm og muninum á guði og mættinum og stóra planinu. Hefnendurnir eru í boði Nexus
-
Hefnendurnir 164 - Infinity Pool: A Star Wars Story
30/05/2018 Duration: 01h51sÆvar hinn sanngjarni og Hulli hinn súri fara aftur í bíó og taka upp gersamlega skammarlaust og drulluspillt spjall um sprengjurnar sem skullu á strendur skynfæra þeirra síðustu vikurnar. Nánar tiltekið Avengers: Infinty War, Deadpool 2 og Solo: A Star Wars Story. ARÚÚÚGAH SPOLER ALERT.Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Það er aðeins einn guð.
-
Hefnendurnir 163 – Laminn í talfærin
15/05/2018 Duration: 01h23minHulli og Ævar nú hittast á ný. Komnir loks saman eftir smáræðis frí. Þeir ræða um hitt og ræða um þetta, Rambó hinn fimmta og Billa og Tedda. og auðvitað eitthvað sem rímar við ný.
-
Hefnendurnir 162 - Drax í dag
02/05/2018 Duration: 34minÍ óvenju stuttum en að venju skemmtilegum þætti fara Hulkleikur og Ævorman í bíó með Thandrosi og Nebóla, reyna að muna hver þessi Drakúla er aftur, spyrja reykjandi nörda útí tvívídd, og meta meðlimi Star Wars heimsins út frá hæð og meðlimi marvelheimsins út frá kynþokka.
-
Hefnendurnir 161 – Miðgarðsormapytturinn
24/04/2018 Duration: 01h32minGest ber að garði í Hefnendaturninum þar sem Svenni í Nexus kemur til að kynna hvað er á döfinni á næstunni í musterinu. Að auki er komið inná lagaflækjur óða Max, kynlífskölti vinkonu ofurmennisins, illan dauða öskukallsins og komandi ráðstefnu njarðahjarðarinnar, Midgard!
-
Hefnendurnir 160 – Gaurinn sem drap Mozart
17/04/2018 Duration: 01h36minHetjurnar okkar knáu sameinast á ný í Hefnendaturninum til að tjá sig um ofsótta elligoðið, Norbitinn Panamaprins, Billy eitthvað og ógildingu górilluapametsins hans og sprengjuhótun steikarinnar. Og svo er fáninn dreginn í hálfa stöng fyrir tvo nýfallna meistara
-
Hefnendurnir 159 - Vampíruzombíur Vs Zombíuvampírur
11/04/2018 Duration: 01h15minÆvorman í borg óttans og Hulkleikur í friðardalnum ræða símleiðis um bit krútthnífsins, rödd leðurblökunnar, harmleik svarthöfða, táningsár úlfsins og spielbergmyndina sem spielberg spielbergaði í feitt spielberg. Hefnendurnir eru í boði nexus. Nexus: Það er aðeins einn guð.
-
Hefnendurnir 158 - Kanil Spice
27/03/2018 Duration: 01h14minÍ Hefnendaturninum hittast hetjurnar Hulkleikur og Ævorman til kjafta í kaffipásu um heima og geima. Þar á meðal frændalistasamfélagið, fjórgó, kryddlegnar ofurhetjur, húlígana og dómsdoktora, áður en allt endar svo á suðupunkti í sundrandi söngleikjaspjalli.
-
Hefnendurnir 157 – Öfundarréttur
21/03/2018 Duration: 01h28minHetjurnar okkar taka fyrir Ríkharðlífi Harmon, endalok Ævintýratímans, endurgerðan brjálaðan búálf og útvíkkaða Draumaheima ásamt umræðum um viljandi og óviljandi dónaskap og meistarmánaðagláprestarnar hans Hulkleiks
-
Hefnendurnir 156 - He-Man Íslands
13/03/2018 Duration: 01h20minÆvorman og Hulkleikur ræða um risa í heimildamyndum og tölvuleikjum, þrumuguði í froska- og kvenlíki og eftirsjárverða andargogga í Marvel og Star Wars. Hey bara enn einn drulluslaki dagurinn í Hefnendaturninum. Hefnendurnir eru í boði Nexus. Nexus: Resistance is futile.
-
Hefnendurnir 155 – Marbendlaður við Óskarinn
06/03/2018 Duration: 01h50minÆvar og Hulli ræða námsferil Eriks Killmongers, tímaferðalög Kobba Kviðristu, Besta hlutverk Rockwells, gleymda minningu West og ástarljóð Del Toros.
-
Hefnendurnir 154 – Þagnarræðan
01/03/2018 Duration: 01h25minHulli snýr aftur frá Berlín og hann og Ævar ræða um úrslit Eddunnar, allt þetta dót sem er búið að vera að gerast síðan þeir hittust síðast, leiðrétta sjálfa sig og hlusta síðan á þakkarræðuna sem heyrðist ekki. Svo halda þeir í myrkviði Pardusdýrsins.
-
Hefnendurnir 153 - Þetta Eddast!
13/02/2018 Duration: 01h41minHetjurnar okkar hittast á ný eftir langa fjarveru frá hvorum öðrum, fallast í faðma og ræða um víðfeðmt umfjöllunarefni eins og koddalausar flugfarir, meint fánýti fagverðlauna, illa hirta þúsaldarfálka, brynjuklædda brjóstvöðva og auðvitað Lobay.
-
Hefnendurnir 152 - Ásgeir Kolberbatch
06/02/2018 Duration: 01h31minÆvar er með Stokkhólmsheilkenni þannig að Hulli fær Lóu Hjálmtýs aftur sem gestaHefnenda og þau ræða dvergvaxna Íslandsvini sem borða fólk, nineties leikkonur sem trufla tímalínur og uppstökka unglinga sem engjast í undirmeðvitundum uppkominna einstaklinga.
-
Hefnendurnir 151 - Critic Bashing Time
01/02/2018 Duration: 01h27minÆvar er í Svíþjóð að representa land og þjóð þannig að Hulli ræður Lóu sem gestaHefnenda og þau ræða Bobcat Goldthwait, fjarlæga brauðristarfeður og bróður Búffans í Stand By Me.
-
Hefnendurnir 150 – Andabæjaraðdáendur
23/01/2018 Duration: 01h40minHlunkurinn og Járnmennið halda upp á óvæntan hundraðastaogfimmtugasta þátt sinn með ofhlæði af athyglisbresti, málvillum og óákveðni. Sandrés Önd kíkir í heimsókn og þau ræða allt á milli Abbey og Abba.