Hefnendurnir

  • Author: Vários
  • Narrator: Vários
  • Publisher: Podcast
  • Duration: 281:31:43
  • More information

Informações:

Synopsis

Podcast by Hefnendurnir

Episodes

  • Hefnendurnir 129 - Drazzle!

    03/07/2017 Duration: 01h29min

    Hulkleikur og ÆvorMan koma ferskir úr fríinu til að ræða fasískar hliðarvíddir, meinta hræsni vampírubanaskaparans og fara svo yfir allt feita sjittið sem San Diego comic con lofaði þeim í treileraformi.

  • Hefnendurnir 128 - Smjörkubbsvafflan V Logagrettan: Dawn of Sumarfrí

    26/06/2017 Duration: 01h06min

    Hulkleikur og Ævorman fara saman í bíó og hljóðrita reynsluna. Þeir ræða nineties kóngulær, trumpaða kapteina, strákastelpur með fjólubláa lokka, ameríska guði og barnabílstjóra. Svo fara þeir í sumarfrí! Heyrumst aftur í haustmyrkrinu!

  • Hefnendurnir 127 - 20 bestu ekki-ofurhetju-myndasögumyndir ever

    19/06/2017 Duration: 01h25min

    Hulkleikur og Ævorman telja upp bestustu og sniðugustu og flottustustu myndasögubíómyndirnar sem eru ekki byggðar á ofurhetjumyndasögum.

  • Hefnendurnir 126 - Nananananananana Adam

    12/06/2017 Duration: 01h11min

    Hulkleikur og Ævorman setjast í Einarsgarð og ræða pardusaplaköt, nasistanýríki og brotthvarf besta blökumanns bítnikkatímans.

  • Hefnendurnir 125 - Hashtag feminism

    22/05/2017 Duration: 01h25min

    Hulkleikur og Ævorman ræða um períódur í geimnum, elliæra riddara, sokkaskikkjur og stærsta gamechanger þessa árs, Ungfrú Undur. Hjarta hjarta ex ex.

  • Hefnendurnir 124 - Rauðhærð og útlæg

    15/05/2017 Duration: 01h08min

    Hulkleikur og Ævorman ræða um hvað er að gerast, hvað þeir eru að glápa á, hvað þeir eru að spila á og minnast moore og boothe.

  • Hefnendurnir 123 - Doktorsþríleikurinn þrjú : Doktor Allt bú!

    08/05/2017 Duration: 54min

    Sandra Barilli situr með Hullinu og Ævörinni í þriðju lotu epískrar Doctor Who umræðu. Nú er seglum snúið að sitjandi og fráfarandi Doktor: Peter Capaldi. Tímalávarðurinn með hvassa skapið. Klárum þetta! Shut up!

  • Hefnendurnir 122 - Doktorsþríleikurinn II : Doktor nú þú!

    01/05/2017 Duration: 01h06min

    Sandra, Ævar og Hulli ræða ellefta doktorinn í öðrum hluta doktor who þríleiksins í þessum hundraðtuttugastaogöðrum þætti hefnenda. Frumfluttur á sextánda degi fimmta mánaðar sautjánda árs tuttugustu og fyrstu aldarinnar. Nei bíddu er þetta ekki átjánda árið? hvernig virka aftur aldamót? Allavega Matt Smith og hans tímaflækjur eru spónaðar í atóm! Geronimo!

  • Hefnendurnir 121 - Doktorsþríleikurinn I : Doktor Hú?

    24/04/2017 Duration: 01h08min

    Ævarinn, Hullinn og Sandran setjast niður og hljóðrita fyrsta kafla í epískri Doctor Who trilógíu. Í þessum þætti ræða þau hinn skammlífa Eccleston og hinn langlífa Tennant. Fantastic! Allons-y!

  • Hefnendurnir 120 - Sandrés Önd í yfirhefnslu

    17/04/2017 Duration: 01h13min

    Hulkleikur yfirhefnir Söndru Barilli, lífskúnstner, umboðsmann og Pad Thai aðdáenda. Þau ræða um hvað The Sweetest Thing er vanmetin snilld, hvað litla hafmeyjan kann að gera flotta hársveiflu og hvað garðyrkju-ofurkraftar geta verið gagnlegir.

  • Hefnendurnir 119 - Brúna Eldingin

    10/04/2017 Duration: 01h06min

    Hulkleikur og Ævorman semja heila bíómynd! Eða réttara sagt semja sögu fyrir heila bíómynd! Eða réttara sagt byrjun að sögu fyrir heila bíómynd. Brúna Eldingin er action ævintýri fyrir alla fjölskylduna ef að öll fjölskyldan er eldri en sextán ára. VRÚMM! VRÚMMM!!

  • Hefnendurnir 118 - Gwyneth gufan

    03/04/2017 Duration: 01h12min

    Hulkleikur heimsækir Dídí í Lalalandi á meðan Ævorman húkir flensuhokinn heima á klakanum. Með aðstoð framtíðartækni tókst þeim þó að taka upp þátt þar sem rætt er um Nælon og sundlaugarpartí, ömurlega umboðsmenn, poppmenningu draumaborgarinnar og svo er síðasti kapítulinn af Lalasápunni skrifaður af Dröfn á englaryki.

  • Hefnendurnir 117 - Dottið upp

    27/03/2017 Duration: 01h07min

    Hugleikur og Jóhann Ævar setjast á sviðið á myrkum bar og tjá sig um myrka hluti eins og tuðandi trúða, dútlandi drauga, skápasköp og skrímslasprella og flytja lengstu auglýsingu í sögu Hefnendanna sem by the way eru í boði Nexus. Sem er besta búð í heimi.

  • Hefnendurnir 116 - Konráðs Saga Barbara

    20/03/2017 Duration: 01h13min

    Hulkleikur og Ævorman spjalla um synglýsingar, myrkraprinsa, mömmur á mars, skítaþorp, svarta sjálfselskendur, gluggaveðursbíómyndir, finnskan typpamassa, íslenskar leðurblökur, áru ofurmenna, uppáhalds ósýnilingar og hefndarklám gegn vondum forsetum.

  • Hefnendurnir 115 - Frussuprumpið

    13/03/2017 Duration: 49min

    Sökum græjuleysis grípa Hullóan og Ævorið til neyðarúrræðis í upptökutækni og æða síðan með litaleiðréttingarspjaldið sitt í Réttlætisdeildarkitluna, ræða það sem er ofur og van í Désaheimum, áður en þeir rabba bara lúnir um Orkuleysi og hamra á heitum Járhnefa.

  • Hefnendurnir 114 - Hlátrinum fórnað

    06/03/2017 Duration: 01h13min

    Hugarangrið og Ævupestin ausa úr passívaggressívum skálum sína á hvimleiðan Járnhnefa, vafasamt Spiderman spinoff og endurjórtrað Matrix. En fljúga þeir að vit hýpóþetískra spurninga um hvort sé mikilvægara; yfirnáttúruleg hugarorka eða túlkun tilfinninga.

  • Hefnendurnir 113 - BuffyLove Soldiers

    27/02/2017 Duration: 01h14min

    Huffy og Ævgel ræða feit mútantabörn, vondar löggur á íslandi og auðvitað afmælisbarnið sjálft, drottningu drísladrápsins, skrímslaslátrarann frá Sunnydale; Buffy the fokking Vampire Slayer.

  • Hefnendurnir 112 - Game Over, Man!

    20/02/2017 Duration: 01h12min

    Piltarnir okkar prúðu reka síðasta líkkistunaglalann í Lalalöndunina áður en þeir jarma aðeins um Jarfa, reyna að skilgreina hvaða ofurhetjur eru eiginlega ofurhetjur og pexa síðan um Paxton sem kvaddi okkur alltof snemma nú fyrir skömmu.

  • Hefnendurnir 111 - Gamli kallinn með umslagið

    13/02/2017 Duration: 01h13min

    Ævor Man skríður niður í Hulkbunkerinn og þeir Hulkleikur horfa á óskarinn ásamt góðum gestum. Nánar tiltekið þeim God of Thránder (Þrándur Þórarinsson) og Kill Billgju (Bylgja Babýlons). Tilfinningar eru tjáðar, taugar kitlaðar og snakkskálar tæmdar.

  • Hefnendurnir 110 - Hulli 4-ævar

    06/02/2017 Duration: 01h08min

    Hulli og Ævar fara í sjálfhverfasta trúnó allra tíma og tala einungis um Hulla og Ævar. Ævar yfirheyrir Hulla um Hulla og Hulli yfirheyrir Ævar um Ævar. Æ var það ekki? Hull yeah!

page 5 from 11