Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 109 - Ben Off-leck… heh heh… ekki?
30/01/2017 Duration: 01h11minDrengirnir dágóðu dútla við hvorn annan í drykklanga stund og þræta um hvort er betra, meyja eða ljón? Hvor sé verri, Batman Forever eða Batman & Robin? Hvor er meira sexist, myndasögubransinn eða tískubransinn? Þetta og margt fleira í Hebb! Nenn! Dumm!
-
Hefnendurnir 108 - Doktor hver nú?
23/01/2017 Duration: 01h31minKrútturassarnir fá Sandrés Önd í heimsókn og þau spyrja hvort annað spurninga eins og: Hvernig fljúga risaskjaldbökur? Afhverju hunsar akademían mútanta? Hver verður næsti doktor? Og í alvöru, hvað er svona gott við La La Land? Ég meina í alvöru? HVAÐ?! Ó vorum við búnir að tala um þetta?
-
Hefnendurnir 107 - La La Rant
09/01/2017 Duration: 01h11minHullsubrauðið og Ævarosturinn ræða ljósmyndir af limum, skilning á skaupinu og pönkleysi Potusar áður en þeir rökræða hina ultimate spurningu: hvort er betra, risaeðlur eða dans?
-
Hefnendurnir 106 - Öskrandi sjálfhverfa grínistans
02/01/2017 Duration: 01h49minHulkleikur og Ævorman hittast til að kryfja uppáhalds sjónvarpsþætti sína á síðasta ári en fara fjallabaksleið að því eftir eigin höfði, með stuttum stoppum í Razzievík, Hvíta Forn-Egyptalandi og MonkeySpankfirði.
-
Hefnendurnir 105 - Djöfullinn klæðist normcore
26/12/2016 Duration: 01h01minDrengirnir okkar hugprúðu gera sitt best til að afsaka fjarveru sína síðustu viku en tekst það ekki alveg en í staðinn tala þeir um barnagirnd Súpermanns, bessaleyfi Bryans Singer og sex ég meina níu bestu kvikmyndir síðasta árs.
-
Hefnendurnir 104 - Hjálpaðu okkur 2017, þú ert okkar eina von
19/12/2016 Duration: 01h02minHulkleikur og Ævorman reyna að díla við sviplegt fráfall íkonsins Carrie Fisher með veruleikaflótta og hugleiðingum um tímans þunga gang. Þátturinn er seinna á ferð en vanalega. Það var eins og hann tafðist til þess eins að Hefnendurnir gætu kvatt Carrie sem hefur gefið okkur...
-
Hefnendurnir 102 - Koss Kapteinsins
12/12/2016 Duration: 01h42minTil að fagna því að uppáhaldsbúðin þeirra í heiminum, Nexus, er nýr styrktaraðili Hefnendanna rifja Hulkleikur og Ævorman upp Nexus sýningar á árinu, tala aðeins um trailera og vafra síðan yfir á jarðsprengjusvæði ofursamkynhneigðar og ástir á stríðslínum á sinn klunnalega en einlæga máta.
-
Hefnendurnir 103 - Hinn Rjóði Ás
12/12/2016 Duration: 01h42minHulkleikur og Ævorman ræða eigin sköpunarverk ofurhetjubækur og fangelsisþætti, óskir sínar hvað gjafir varðar og stærstu kvikmynd ársins, Rogue One.
-
Hefnendurnir 101 - Resurrection
05/12/2016 Duration: 01h26minStrákarnir snúa aftur til að verma skammdegishjörtu jarðarbúa með léttu hjali um allskonar skemmtilegt dót. Hvaða dót? Nú til dæmis nútímanasista, hina stöðugu baráttu óreiðu og skipulags, hvað Dr. Strange er flott mynd og svo lesa þeir langan lista um sci-fi þætti. Er það ekki bara fínt? Jú.
-
Hefnendurnir 100 - Hefnendirinn - The Death Of Hefnendurnir
07/03/2016 Duration: 01h25minÍ tilefni af sínum hundraðasta þætti ætla Hefnendur að gera það sem þeir gera best… tala… bara það… tala… um allskonar… ekkert gimmick, engir dagskrárliðir, bara tveir hefnendur að tala um hluti. Tali tali tali. Í hundraðasta veldi. Knús og kram! Hulkleikur og Ævorman. Þormóður Dagsson sá um flutning á intróinu að þessu sinni.
-
Hefnendurnir 99 - Réttarhöldin yfir Hefnendunum
29/02/2016 Duration: 01h33minRéttarhöld eru haldin yfir hetjunum okkar þar sem Ævorman og Hulkleikur þurfa að verja sig gegn ásökunum saksóknarans Erik The Viking og svara fyrir glæpi sína gegn jarðarbúum. Allt er lagt að veði, njósnir, feðraveldið, hár og hunsun í æsispennandi réttardrama og nítugasta og níunda þætti Hefnendanna.
-
Hefnendurnir 98 - Trek Wars (Live! á Húrra)
22/02/2016 Duration: 01h01minHefnendurnir stigu upp á svið á Húrra um daginn ásamt Fílalagsbræðrum og fluttu þátt fyrir framan “live studio audience”. Sú taumlausa gleði var tekin upp og nú geta jarðarbúar hlustað á Hulkleik og Ævorman velta fyrir sér verðleikum Jobsanna, hvað Hulli og pabbi hans horfa á saman á kvöldin; og hvort vinnur í slag, Star Trek eða Star Wars? Njótið heil!
-
Hefnendurnir 97 - Eins og eldgömul sápa
15/02/2016 Duration: 01h26minEftir hressandi hundasund í Dauðalauginni pæla Hullinn og Ævarinn í pésé húmor, Stebba steik, nýjum Refsara og hetjunum í sviðsljósinu, áður en þeir skella sér í eitt verulega feitt maraþonáhvaðertuaðglápa.
-
Hefnendurnir 96 - Rödd Rudds
08/02/2016 Duration: 01h19minHefnendurnir ræða um hvort sé merkilegra umræðuefni, Óskarsverðlaun eða klósettpappír. Svo tala þeir um auglýsingar í súpuskál og fjarlægt fyrirbæri sem kallast ást.
-
hefnendurnir 95 - Fyndnari á frönsku!
21/12/2015 Duration: 01h24minÆvorman snýr aftur í fang Hulkleiks og þeir tala með munnunum sínum um athyglisbresti, hvítasta óskarinn og fæðingu þjóðar, Kisuna Kevin og ómeðvitaðan brandaraþjófnað.
-
Hefnendurnir 94 - Ógn Og Scheving
14/12/2015 Duration: 01h36minÆvorMan er upptekinn við að bjarga heiminum Þannig að Hulkleikur fær Lobo Hjálmtýsdóttur til að halda rassafari hans volgu á meðan. Þau ræða um gagnsleysi giftinga, andlát Alans, orðaleiki Arnolds og einelti gegn elítunni í þessum athyglisverða og athyglislausa þætti.
-
Hefnendurnir 93 Kommittað Að Koma Með Komment À Comic Con
07/12/2015 Duration: 01h35minHetjurnar okkar vafra vammlausar inn í nýja árið og umvafnir vafasömum brókartöfrum púkakóngsins syrgja þeir fallna geimhetju, tala smá um veðrið, taka smá dansútúrdúr og taka síðan á sig rögg til að ræða um gúrmelaði nördahlaðborðs komandi árs
-
Hefnendurnir 92 - Börnin eru búin, allir eru gamlir (Áramótaannáll Hefnenda 2015)
30/11/2015 Duration: 01h14minHeimsumhullinn og Jólhann Ævar taka fyrir átján af helstu menningarþrekvirkjum ársins sem var að líða í þessum glimrandi skemmtilega, árvissa áramótaannáli hefnenda og halda ennfremar upp á afmæli frelsarans frá Manhattan.
-
hefnendurnir 91 - Það er auðvelt að fótbrjóta engil
23/11/2015 Duration: 01h42minHullaskellir og Ævasleikir heyrast símleiðis frá sitthvoru jólaævintýrinu og skeggræða jólasveina, jesú, star wars og önnur trúarbrögð í þessum viðburðarríka vetrasólstöðuþætti.
-
Hefnendurnir 90 - Það var svo sem auðvitað!
16/11/2015 Duration: 01h21minGætið ykkar! Nú byrja Hefnendurnir! Í dag fjalla þeir um hvað það er erfitt að vera frægur, bera saman nasista og daleka, óska sér fleiri jólagjafa frá uppáhaldsbúðinni sinni Nexus – áður en þeir halda á vit ævintýranna með epísku spjalli við sveppagreifann Stefán Pálsson um Sval og Val.