Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 29 - Pilotpælingar
15/09/2014 Duration: 01h10minÁ meðan Hulkleikur heimsækir Finnland lítur Ragnar Rawkeye Hansson aftur í heimsókn til Ævormans og þeir hugleiða finnska fyndni, segja nektarsögur af sjálfum sér og fara á flug um pilot þætti.
-
Hefnendurnir 28 - Leikur Köngulóarkonunnar
08/09/2014 Duration: 01h13minÁ meðan Hulkleikur spókar sig í borg englanna fær Ævorman gestahefnandann Rawkeye í heimsókn til að ræða við sig um klúrar kápur, steðjaverksmiðju og ferskan doktor áður en þeir kafa ofaní kvenhetjur í tölvuleikjum.
-
Hefnendurnir 27 - De Palmasunnudagur
01/09/2014 Duration: 01h32minAð þessu sinni pizza Hefnendur sig upp áður en Ævorman skreppur frá og Hulkleikur fær í heimsókn kvikmyndafræðinginn og De Palma ástríðumanninn Ara Gunnar Þorsteinsson sem færir alla góða jarðarbúa í sannleikann um það hvers vegna dýrka eigi Brian, meistara myndmálsins.
-
Hefnendurnir 26 - Bless Boy Wonder
25/08/2014 Duration: 01h05minÍ sínum tuttugusta og sjötta þætti hallmæla Hefnendurnir meintum leðurblökuskapara og minningargreina tvær dívur hvíta tjaldsins áður en þeir rifja upp góðu stundirnar með hefnendaheimilisvininum Robin Williams.
-
Hefnendurnir 25 - Glerdýraborgin
18/08/2014 Duration: 01h23minHefnendurnir smella í sig steinastaupum, ræða flóttamenn úr æskuparadís og rifja upp minnistæðar bíófarir áður en þeir taka á móti dröfningunni DD Rozas sem leiðir þá í allan sannleikann um það sem gerist bakvið tjöldin í draumaborginni L.A.
-
Hefnendurnir 24 - Anna í Sveittuhlíð
11/08/2014 Duration: 01h03minHefnendurnar ræða manngerðar endur, takmarkaða múltíversa og rostungahorror áður en þeir fara í bíó með Önnu Svövu Knútsdóttur. Inniheldur mjög minor spoilera um Guardians of the Galaxy.
-
Hefnendurnir 23 - Með sand í egóinu
04/08/2014 Duration: 01h43minHetjurnar hugumprúðu eygja alklæðnað Amazóngyðju, sækja syndaborgina svarthvítu heim, mæna á minnkaðan mauratamningamann og halda hamingjusamir niður Heiftarveginn, er þeir verja heilum þætti í að gera upp nýafstaðna nördaveislu mega-myndasöguráðstefnunnar í San Diego.
-
Hefnendurnir 22 - Úr Leðurblökuskápnum
28/07/2014 Duration: 01h57minHeilagar Halakörtur Jarðarbúar! Haldiði ekki að Hefnendurnir hafi hent í heljarstóran hátíðarþátt um Leðurblökumanninn sjálfan. Dýnamíska dúóið okkar heldur upp á 75 ára afmæli hempuklædda krossfarans með löngu og íburðarmiklu spjalli um Batman. Tíu Bill Finger upp til guðs!
-
Hefnendurnir 21 - Litla Líkkistan
21/07/2014 Duration: 52minÆvör og Hulda hella uppá jurtate og ræða kynskipti ofurhetja, kynþáttaskipti ofurhetja og afstæði apavæmninnar. Örvar Eusébio lýsir úrslitaleik Hefnendadeildarinnar og limir fljúga.
-
Hefnendurnir 20 - Mirönduheilkennið
14/07/2014 Duration: 02h02minJárnmennið og Grænmetið ákveða bragðbestu brúðuna, kvikindislegustu kvikmyndina og öndverðustu ofurkonuna, auk þess sem þeir fá fróma og fantasíska fótboltafræðslu frá Örvari Eusebio í þessum tvöfalda og tuttugasta tímamótaþætti Hefnenda.
-
Hefnendurnir 19 - Gulrótarblekkingin
07/07/2014 Duration: 01h13minHefnendur ræða um keppnisskap, kaiju-konur og karþasis í ofbeldisóperum áður en Ævor Man kemur með fagrar fabúleringar um Franquin sem Hulkleikur þurfti endilega að breyta í íhugun um Andrésar erótík. Við biðjumst velvirðingar á suðinu í þessari upptöku. Það er Doctor Doom að kenna.
-
Hefnendurnir 18 - Vampýr Áskell vs. Zombie Brown
30/06/2014 Duration: 01h14minFullhugarnir fílelfdu fagna aldarfjórðungs afmæli Burton blökunnar, agnúast um ódauða uppvakninga og reyna rauðeygðir að réttlæta og verja væskilslegu vinnuna sína.
-
Hefnendurnir 17 - Snöffbolti
23/06/2014 Duration: 01h25minHetjurnar okkar díla við drottinssvik, horfa á nokkrar hermikrákumyndir, minnast fallins B'starðs og reyna að fóta sig í boltaheimum.
-
Hefnendurnir 16 - Dalur doppelgängeranna
16/06/2014 Duration: 01h24minHulkleikur og Ævor man velta fyrir sér dystópískum útópíum, spá í kúrekageimverubönum og skreppa síðan í heimsókn í dal tvífarakvikmyndanna.
-
Hefnendurnir 15 - Son of Han
09/06/2014 Duration: 01h23minHulkleikur og Ævor Man fá Ragga 'Rawkeye' Hansson í heimsókn til sín til að ræða stjörnustjórnarkosningar, tímaflakkandi kynlífsbandíta og mauramann í sköpunarkrísu.
-
Hefnendurnir 14 - Gremja Górilluhvalsins
02/06/2014 Duration: 01h12minÆvor Man og Hulkleikur ræða um dularfulla ofurkrafta Kitty Pryde, skoða kosningar með sínum augum og fá Kaiju áhugamanninn Ómar Swarez til að uppfræða þá um leyndardóma Godzilla.
-
Hefnendurnir 13 - Bítladróttinssaga
26/05/2014 Duration: 01h17minHetjurnar okkar ræða um nýjasta búning Leðurblökumannsins, minnast skrímslasmiðsins H.R. Giger og spekúlera í kvikmyndum sem aldrei urðu.
-
Hefnendurnir 12 - Jesúsvision
19/05/2014 Duration: 01h31minHetjurnar okkar syrgja samfélaga sína í Community, rifja upp samfélagsfælni sína á gaggóárunum og kynna nýjan dagskrárlið sem þeir vita ekki hvað heitir en inniheldur syngjandi fabjúlöss ofurhetjujesú.
-
Hefnendurnir 11 - Öll vötn falla til Tatooine
12/05/2014 Duration: 01h13minHulkleikur og Ævor man heimsækja uppeldisstöðvar sínar í Nexus á ókeypis myndasögudeginum og kryfja síðan samband sitt við Stjörnustríð í tilefni May the fourth.
-
Hefnendurnir 10 - X-mendurnir
05/05/2014 Duration: 02h10minÍ sérstökum tvöföldum hátíðarþætti Hefnendanna kafa Hulkleikur og Ævor Man ofaní sögu hinna stökkbreyttu X-manna gegnum kvikmyndir og myndasögur. Xtra blaður! Xtra gleði! Xtra enskuslettur!