Hefnendurnir

  • Author: Vários
  • Narrator: Vários
  • Publisher: Podcast
  • Duration: 281:31:43
  • More information

Informações:

Synopsis

Podcast by Hefnendurnir

Episodes

  • Hefnendurnir 49 - Diplómatísk friðhelgi

    02/02/2015 Duration: 01h17min

    Hefnendurnir hefna um gramm af Kanye, Marvelös lóafréttir og ris og fall Júpiters áður en þeir kynna til sögunnar nýjan dagskrárlið, spjalla um spjallþáttastjórnanda og kommenta á kommentakerfi. Hulkleikur lætur þó síðan ekki Berlínarútlegð sína stöðva sig og sendir angurvært sendibréf mitt úr hjarta meginlands Evrópu.

  • Hefnendurnir 48 - Ástin og bleyðumarkaðurinn

    26/01/2015 Duration: 01h26min

    Hefnendurnir gerast amorískir í tilefni verðandi Valentínusar og velta fyrir sér ástum ofurhetja, ástum vélmenna og ástum morgunverðarklúbbsins áður en þeir sæka sig upp og beina grænum og köldum hjörtum sínum inn á við og skoða abstrakt og veraldlegar upplifanir sínar í ástarmálum.

  • Hefnendurnir 47 - Fyndin er grimmdin

    19/01/2015 Duration: 01h08min

    Ragneto kemur óvænt í heimsókn til hetjanna okkar og þrenningin þráláta þræðir sig gegnum skeggtísku, spurningabombubombur, grimmd í gríni og innrásir á Gúbíter, áður þeir velta fyrir sér kvenkyns afturgöngumorðingjum og hvort að „Nei“ sé í raun og veru ekkert svar.

  • Hefnendurnir 46 - Tvöþúsund Og Furious

    12/01/2015 Duration: 01h16min

    Hefnendurnir tala um skólun Hulkleiks í HÍ, karlasmekk nineties ljóska og ofurhetjuofhlæði Hollywoods áður en þeir telja upp helstu tilhlakkanir hvað varðar kvikmyndir á komnu ári.

  • Hefnendurnir 45 - Je Suis Kamala Khan

    05/01/2015 Duration: 01h11min

    Hetjurnar hugumprúðu fá félaga Ragneto í heimsókn til að rabba um meistara algeimsins, þeldökkan þríbura og Frozen áráttu Hulkleiks áður en þeir hugleiða hroðalega atburði í París og þýðingarþrungna meiningu þeirra.

  • Hefnendurnir 44 - Aftur til framsóknar

    29/12/2014 Duration: 01h05min

    Í fyrsta þættinum á nýju ári horfa hetjurnar okkar til framtíðarinnar þar sem þeir takast á við tækniframfarir, pæla aðeins í nútímanum og horfa um öxl er þeir skoða Skaupskrif.

  • Hefnendurnir 43 - Tárin bakvið þrívíddargleraugun (Áramótaannáll Hefnendanna 2014)

    22/12/2014 Duration: 01h26min

    Hulkleikur þenur út tárkirtlana og Ævorman skellir sér í Hulkbuster brynjuna sína er þeir útkljá nördaárið sem er að líða með stæl í sérstökum áramótaannál Hefnendanna.

  • Hefnendurnir 42 - Meiningin bakvið jólin, alheiminn og allt

    15/12/2014 Duration: 02h07min

    Giljahulk og Ævorstaur fá Jarðarbúahöfðingjann Benjamín Sigurgeirsson í heimsókn og ræða baráttu kóngulóarkonunnar við jólaköttinn, þolanleika miðju-Malcolms, örlög Loka Laufeyjarsonar og afmælisdag frelsarans. Auk þess mætir Lóa hjálmtýs og gaggrýnir bók og allir eru glaðir og gleðileg jól.

  • Hefnendurnir 41 - Stjórnræningjarnir

    08/12/2014 Duration: 01h06min

    Hulkleikur og Ævorman spá í slímugum sniglum, þrasa um þunglyndar mörgæsir, skemmtigarð Skerláks og falla fyrir fúríuvegi óða Max áður en þeir gaggrýna nýja íslenska myndasögu og setja á sig sjóræningjahatta til að umbreytast í útibú frá Útvarpi Sögu.

  • Hefnendurnir 40 - Hin Heilaga Grýla

    01/12/2014 Duration: 01h10min

    Hetjurnar okkar ræða um ný andlit í röðum kvikmyndaðra ofurhetja, impra á norður kóreskum tölvuhryðjuverkum og spá aðeins í sérstökum jólaþáttum áður en þeir stinga sér á kaf í hafsjó af jólafróðleik.

  • hefnendurnir 39 - Tom Cruise fær ekki að ríða um jólin

    24/11/2014 Duration: 01h17min

    Hefnendurnir fá post-apocalyptic-norse-god-kung-fu-steampunk -trilógíuhöfundinn Emil hjörvar Petersen í heimsókn, ræða um nýjustu treilerana og búa til eitt stykki jólamyndadagatal handa jarðarbúum.

  • Hefnendurnir 38 - Úr að ofan

    17/11/2014 Duration: 59min

    Hefnendur spá og spekúlera í hugsanlegu sjónvarpi frá helvíti, látnum leikstjóra, ómerkilegum ofurhetjuþáttum og fáránlegu fatavali félagslega fatlaðra fróðleiksmanna.

  • Hefnendurnir 37 - Tinder á Coruscant

    10/11/2014 Duration: 01h10min

    Grímsævintýrið og Dagshugleiðingin taka snúning á aldraðri frænku Péturs Parker, kíkja á kynverund Hulks, reipsjeima Dr. Fuckstable og bera saman ímyndaðar fasteignir í þessum tímabærasta Hefnendaþætti ever.

  • Hefnendurnir 36 - Topp 20 mikilvægustu kvikmyndir í sögu tímans ever punktur bannað að breyta.

    03/11/2014 Duration: 01h19min

    Búið að loka kjörstöðum og setja gaddavír og jarðsprengjur og stóra hunda og menn með byssur og múrvegg og risaeðlur með þrjá hausa sem spyrja gátur eða rífa þig í sig og risastór kolkrabbi sem borðar skip og guði og þetta er sko ekki tungl...

  • Hefnendurnir 35 - Marvelaði

    27/10/2014 Duration: 44min

    Hefnendur missa nokkra lítra af munnvatni yfir nýrri áætlun Marvel risans, 35 ára afmæli Alien og popptónlist tileinkaðri g-unum þremur.

  • Hefnendurnir 34 - Ástin og óttinn

    20/10/2014 Duration: 01h13min

    Hulkleikur örvæntir á meðan Ævorman talar um skilnað ostamannsins, en síðan horfast hetjurnar okkar í augu við hrylling í sínum margvíslegu myndum og rifja upp nokkur af þeim atriðum sem þeim hrýs við hugur í tilefni hrekkjavöku.

  • Hefnendurnir 33 - Trúðaofstæki

    13/10/2014 Duration: 01h22min

    Hetjurnar okkar tvímenna drangana og kvengera draugabana ásamt því að ferðast í framtíðina með Súpermann og félögum áður en þeir ráðast gegn erkióvinum sínum, hinum hvítmáluðu og martraðavekjandi trúðum.

  • Hefnendurnir 32 - The Saga

    06/10/2014 Duration: 01h57min

    Í fjarveru Ævormanns fær Hulkeikur Sögu Garðars í þáttinn og þau horfa saman á Star Wars. Alla myndina. Frá upphafi til enda. In real time. That's right. Þessi þáttur er eitt stór Star Wars commentary. May the force be with you. (Taka skal fram að við erum að horfa á gömlu orginal theatrical release útgáfuna.)

  • Hefnendurnir 31 - Digital Hitler

    29/09/2014 Duration: 01h18min

    Í sínum þrítugasta og fyrsta þætti ræða hetjurnar okkar um krossaða sadista, miljón orð frá Alan Moore og feikaða pardusinn hans Steve Martin áður en þeir rýna í gagnrýni og spá í hugumstór hjörtu Skota.

  • Hefnendurnir 30 - State of the Union

    22/09/2014 Duration: 01h49min

    Hulkleikur snýr aftur í faðm Ævormans og saman halda þeir uppá þrítugsafmælið með nýju Hefnendastefi og heiftarlegu hugarangri um Doktorinn, Stallone og endinn á Contact. Allt fyrir Jarðarbúa.

page 9 from 11