Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 89 - Brækur Sean Connery
09/11/2015 Duration: 01h36minHefnendum gengur brösuglega að hefja nýjan þátt í storminum, en þegar þeir komast af stað fara þeir á flug um kínverska drauga, ó-óviðeigandi framtíðarfatnað og öldrunaráhrif leikstjóra áður en þeir demba sér í kassann með nakta kallinum og gera sér Nexusjólagjafaóskalista. Munið síðan að kíkja...
-
Hefnendurnir 88 - Ekki borða rauðan snjó
02/11/2015 Duration: 01h05minHefnendurnir mæta fílelfdir til leiks með flottustu byrjun ever á podcasti. Sem þeir tóku reyndar ekki upp því græjan varð batteríslaus. Oh well. Þetta er samt góður þáttur. Jessica Jones, Hildur Knúts, ofvirkar draumastelpur og töfranegrar.
-
Hefnendurnir 87 - Later Slater
26/10/2015 Duration: 01h05minHeffararnir gjeffa og gjaffa um bardagalistir Bigga Löggu, þunglyndar kvenhetjur, ómerkilega járnhnefa og mottunet í austurlandahraðlestum áður en þeir gerast stjörnufræðingar í þessum þakkargjörðarþætti þar sem þakkað er fyrir að vita varla um hvað þakkargjörðarhátíð gengur útá. Eitthvað með fótbolta.
-
Hefnendurnir 86 - Innsetning njósnarans
19/10/2015 Duration: 01h05minHulli skilur ekki afhverju heimurinn er svona slæmur og Ævar reynir að útskýra það. Þegar þeir eru búnir að fatta hvernig á að bjarga heiminum ræða þeir um tíkarplánetu og Jason Bourne ég meina Jack Bauer ég meina James Bond.
-
Hefnendurnir 85 - Aldrei er góð China of oft China
12/10/2015 Duration: 01h09minHulkimons og Ævordúll líta í eigin barm er þeir athuga karlmennsku-einkenni sín, hvaða kvikmyndir kúra skal með kærustum yfir og hvernig þeir geta almennt orðið betri manneskjur og það sem mikilvægara er; betri Hefnendur. China China China China China China China China China China China…
-
Hefnendurnir 84 - Mó standöpp mó hekklíng
05/10/2015 Duration: 01h30minHetjurnar okkar skríða undan hrekkjavökuhelginni með fréttir af fleiri ótrúlegum sögum, mítladýrkun sinni og hvernig nasistarnir gerðu allt betra áður en þeir ávarpa ris hinna feykileiðinlegu frammíkalla.
-
Hefnendurnir 83 - 20 Hryllilegustu Hrollvekjur Sem Við Munum Eftir Í Augnablikinu
28/09/2015 Duration: 01h48minÞjakaðir af valkvíða telja Hulloween og Ævarúlfurinn saman sínar eftirlætis hryllingsmyndir í tilefni af Hrekkjavökunni. Ef þú vilt horfa á eitthvað spúkí eða gorí eða krípí eða bloddí um helgina þá færðu bestu uppástungurnar hér.
-
Hefnendurnir 82 - Kaldhæðna Salatblandan
21/09/2015 Duration: 01h24minHugleiðingin og Grímsævintýrið vesenast út í vonda folkið á útvarpi Sögu, pæla í hverjir passa rassa í Ásgarði, fetast útí framtíðarloforð Zemeckis og reyna að ákveða í hverju þeir eiga að vera næstu mánaðarmót.
-
Hefnendurnir 81 - Betra Er Að Gefa En Adam Sandler
14/09/2015 Duration: 01h17minHetjurnar okkar knáu ræða glataða gjafmildi, aðdáunarverða ómennsku og myndamyndasögur myrkrahesta áður en þeir dýfa sér á kaf í síðustu söludaga og hina eilífu spurningu; „af hverju Adam Sandler?“
-
Hefnendurnir 80 - Dýrin Í Latabæ
07/09/2015 Duration: 01h34minHinn Hugljúfi og Sá Ævislegi setjast niður í alrýmið og gubba úr sér vangaveltum um ofhlæði legósins, fráfall drumbkvendisins og fræðinga markaðsins. En setja svo á sig gáfuhjálminn er þeir gefa forsjárhyggjufasistum og anarkískum terroristum í Latabæ góðan gaum.
-
Hefnendurnir 79 - Tvö Typpi Og Milljón Mömmur
31/08/2015 Duration: 01h33minHullsubrauðið og Ævahnúturinn smjatta yfir smávægilegum forgangsatriðum á borð við heilsuvandamál Don Kíkóta, svarta spegilmynd Camerons og Íslenska skrímslamenn í erlendum stiklum en það er aðeinsforrétturinn því í aðalrétt er NOOOOOOOOOOOO!!!!!!
-
Hefnendurnir 78 - Furryinn í hænsnakofanum
24/08/2015 Duration: 01h33minHulkleikur er á myndasöguráðstefnu í Noregi þannig að Ævorman sló á þráðinn til hans yfir heimshöfin til að rabba um skyggnar mangastelpur, koddablæti karatemeistara og skilnaðarkrísu geðþekka grínistans Peta Holmes, áður en þeir félagar flytja greinargóða gamanhrollvekjuhugvekju.
-
Hefnendurnir 77 - Hinn eilífi hvolpur
17/08/2015 Duration: 01h07minHetjurnar okkar háfleygu sameinast á ný yfir spjalli um Batmanhlutfallið í Súperman mynd, reifa innanhússendurinnréttingar Marvelheima og Ævorman innhverfuprófar Hulkleik – áður en þeir setja upp eldingarvarana og fara að ræða um uppáhaldstrúarbrögðin sín.
-
Hefnendurnir 76 - Tælingar Gúmmívenusar
10/08/2015 Duration: 01h35minÆvorman fór í helgarfrí þannig að Hulkleikur fékk gestahefnandann Lóbó (Lóu Hjálmtýs) til að gæða með sér á bláberjum og gaspra með sér um nördaleikfimi, ofurhetjuskriffinsku, þrívíddarklám og hvað það er erfitt að elska teiknimyndir eftir drullusokka.
-
Hefnendurnir 75 - We get it
03/08/2015 Duration: 01h46minDrengirnir úrræðagóðu hnakkrífast um árstíðir Westeros, skapbresti Bruce Willis, spænskar skopmyndir en bregða svo undir sig leiðari fætinum er þeir minnast látins hryllingsfrumkvöðuls.
-
Hefnendurnir 74 - Blúndur Blökuhjólsins
27/07/2015 Duration: 01h17minHulkleikur og Ævorman vígja nýja upptökugræju með mórölskum vangaveltum um kjúklinga, kynjakvóta og krúsarann. Ævorman reynir að útskýra metafýsikina á bakvið meta og Hulkleikur segir eitthvað vafasamt um nasista.
-
Hefnendurnir 73 - Þúsund andlit Tildu Swinton
20/07/2015 Duration: 01h34minOfurhetjurnar ódrepandi rísa skeinulausir úr gröfinni til að ræða Súperman með sítt að aftan og muninn á Jackson og Depp áður en þeir gera aðra atlögu að Fantastic Four. Því við vorum ekki búnir að klára að ræða Fantastic Four. Not by a long shot.
-
Hefnendurnir 72 - Dark Reign
13/07/2015 Duration: 01h23minÍ sínum nýjasta þætti reyna hetjurnar okkar að leysa leyndarmál tilvistarinnar, Ævorman opinberar uppljómun sína um lífið, tilveruna og allt og Hulkleikur fer að gráta er hann reynir að skilja ástina í þessum tilfinningaþrungnasta hefnKKZZZCCHHRRZZ … hvaða hljóð var þetta?
-
Hefnendurnir 71 - Meyfæðingar framtíðarinnar
06/07/2015 Duration: 01h22minFélagarnir fræðast um mauramann yfir meðallagi, hin floppuðu fjögur og skeggsnyrtingar á tuttugustuogfjórðu öldinni áður en þeir afsaka hvað þessi þáttur kom seint.
-
Hefnendurnir 70 - Júgragarðurinn
29/06/2015 Duration: 01h28minHulkleikur hringir til höfuðborgarinnar í þynnkuvímu eftir Eistnaflug þar sem hann skemmti sér við að skemmta öðrum og rabbar við Ævorman um ofbeldisleysi á þungarokkssveitaböllum, toppana á nýafstaðinni myndasöguhátíð San Diego og fallvaltleika frægðarinnar, áður en Ævorman lýsir yfir áhyggjum sínum varðandi líkindin milli Júraveraldarinnar og Stálmannsins.