Synopsis
Podcast by Hefnendurnir
Episodes
-
Hefnendurnir 69 - Vélmenna apartheid
22/06/2015 Duration: 01h24minÍ nýjasta þætti Hefnendanna Hulkleiks og Ævormanns koma við sögu spanskar eistnaflugur, nýr æðstiprestur þungamálmsins, frekari hugleiðingar um rangleika Cars, sóló Solo og umhverfisvæn steypa. Síðan fabúlera þeir um spinoff af Vöktunum og reyna að gervigreina gervigreind.
-
Hefnendurnir 68 - Krísa í hundraðlandi
15/06/2015 Duration: 01h04minHulkleikur og Ævorman láta af innipúkatendensum og taka upp sinn hundraðasta klukkutíma í sól og vindi. Þar ræða þeir óundirbúnir mjög um nýja köngulóardrenginn, látna stórleikarahetju, ömurlega véllöggu og illa þefjandi íkornastúlku, áður en þeir taka fyrir samkynhneigð í ofurheimum.
-
Hefnendurnir 67 - Þá er ég alinn upp í Gaggó Oz
08/06/2015 Duration: 01h14minHefnendurnir ljúka lengstu upptöku lífs síns með því að náða Simon Pegg, opinbera verstu kvikmynd íslandssögunnar og minnast þess hvernig það var að vera ekki kúl. Minnast nútímans sumsé.
-
Hefnendurnir 66 - Hamstrageddon
01/06/2015 Duration: 01h25minHetjurnar okkar þreyta lengstu upptöku ferils síns með vangaveltum um samband dýra og manna, allar myndir sem eru betri en English Patient og hvort að aðrir en Hefnendurnir eigi rétt á skoðunum sínum um hvað sé flott og hvað sé nott.
-
Hefnendurnir 65 - March of the Legó typpi.
25/05/2015 Duration: 01h26minÆvorman og Hulkleikur missa tímaskynið og tala of lengi um tilfinningalíf Grettis, húðlit Emmu Steins, stór vandamál í litlu Kína, endurkomu aðalsmannaliðsins og endalok raðmorðingjamömmunar.
-
Hefnendurnir 64 - Topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögur
18/05/2015 Duration: 01h06minÍ dag þylja Hefnendurnir upp topp 20 bestu myndasögur sem eru ekki ofurhetjumyndasögur í engri sérstakri röð og nei, Sandman er ekki ofurhetja.
-
Hefnendurnir 63 - We don't need another Heroes
11/05/2015 Duration: 01h25minHulkleikur heldur framhjá Ævormanni með Ragneto á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg á Patreksfirði. Þeir ræða væntalegt sjónvarpshaust, andsetna kónguló og sannleikann um sannleikann í þessari óleiknu og óskrifuðu heimild um það hámark nördismans sem við köllum Hefnendur.
-
Hefnendurnir 62 - F-Bomban
04/05/2015 Duration: 01h30minHellaði Hulli og Æri Ævar bera saman varúlfa og vampýru brækur sínar, hneykslast yfir almyndastiklu og yfirheyra Ollu um HBO Hásætið áður en þeir taka fyrir stelpumynd ársins; Mad Max fjögur.
-
Hefnendurnir 61 - Mamma þín
27/04/2015 Duration: 01h27minHefnendur rabba um reiða svörtuekkjuaðdáendur og hvað þeir eru orðnir ruglaðir í flóknum heimi myndasagna áður en þeir kryfja mömmur í myndasögum, sjónvarpsþáttum og bíómyndum til mergjar.
-
Hefnendurnir 60 - Engifer Reglan
20/04/2015 Duration: 01h18minHefnendurnir eyða sínum sextugasta þætti í að ræða heitmeyjar Hulks, húðflúr háðfuglsins og heimsku hommahatarans OG ÞEIR VORU AÐ FATTA NÚNA AÐ ÞAÐ ER MAY THE FOURTH OG ÞEIR TALA NÆSTUM EKKERT UM STAR WARS! Goddemmit.
-
Hefnendurnir 59 - Always Ultron
13/04/2015 Duration: 01h02sHefnendurnir tveir fara á Hefnendurna tvö og gubba af gleði yfir ástarmálum ekkjunar, betrun bogmannsins og veseni vonda vélmennisins. Olla kíkir í heimsókn og segir skoðanir sínar á stólaleiknum mikla. Excelsior!
-
Hefnendurnir 58 - Babb Í Brandarann
06/04/2015 Duration: 01h14minHulkleikur er orðinn gamall. Hann skilur ekki neitt lengur. En sem betur fer skilur Ævorman Hulkleik. Í þessum fullorðinslegasta hefnendaþætti ever, ræða hetjurnar um hiphop, nauðgunarbrandara og flugvelli. Mazeltov!
-
Hefnendurnir 57 - Kartöflur og salat
30/03/2015 Duration: 01h31minÍ nýjasta þætti takast Hulkleikur og Ævorman á um endalok Simpsons söfnunaráráttunnar, hriplekan stólaleik og kíkja í heimsókn til Ólafíu Erlu vinkonu þeirra áður en þeir raðhylla djöfuls djörfungina í nýju Daredevil seríu Netflix og Marvel.
-
Hefnendurnir 56 - Karlar Sem Hata Nörda
23/03/2015 Duration: 01h48minHefnendur bana þynnkunni á ísfirsku bístrói með brösulegum árangri er þeir láta dæluna ganga um kirkju vísindanna, fruss prumpsins og flug kraftgallans. Við biðjumst velvirðingar á hljóðinu en þessi þáttur var tekinn upp meðal fólks. Fokking fólk.
-
Hefnendurnir 55 - Hinsta flug skjaldbökunnar
16/03/2015 Duration: 01h11minAð þessu sinni er þátturinn allur tileinkaður meistara Terry Pratchett, þar sem Ævorman fær til sín góða gesti til að ræða um helstu verk Pratchett, persónur og arfleið sem spannar allan diskinn, allt frá Klatch til Ankh-Morpork, and that’s cutting me own throat!
-
Hefnendurnir 54 - Who Wants To Liv Forever
09/03/2015 Duration: 01h17minHugleiðingin og Ævintýrið settu sig í sitthvora útlegðina í sitthvorum landshlutanum að skrifa hugleiðingar og ævintýri. En þeir létu það ekki stöðva sig og hljóðrituðu sitt fyrsta símvarp. Umræðuefnið? Nú auðvitað Liv Tyler.
-
Hefnendurnir 53 - Pling the ging
02/03/2015 Duration: 01h53minÍ extra löngum þætti kíkja hetjurnar keiku í kaffi og velta fyrir sér óþörfum framhöldum, borgarstjórabrölti og myndasögum Millars áður en þeir plinga the ging og halda upp á átján ára afmæli Buffy með pomp og prakt.
-
Hefnendurnir 52 - They live! (upptaka af live þætti Hefnenda)
23/02/2015 Duration: 59minHulkleikur og Ævorman þurfa að gera upp sakirnar eftir dramatískar vendingar í síðasta þætti og gera það með stæl í fyrstu live upptöku á hefnendaþætti. Að auki koma góðir gestir eins og jarðarbúinn Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir og lífskúnstnerinn Jón Mýrdal sem og skemmtiatriði frá Uglu og Sögu úr Ástinni og leigumarkaðinum.
-
Hefnendurnir 51 - What The Who Do We Know
16/02/2015 Duration: 01h24minÍ fimmtugastaogfyrsta þætti halda Hefnendurnir uppá fimmtíuogeins árs afmæli Doctor Who með líflegri umræðu um þennan besta sjónvarpsþátt allra tíma. En umræða þessi reynist Hefnendunum ofviða og stefnir vináttu þeirra í hættu...
-
Hefnendurnir 50 - Shades Of Vei!
09/02/2015 Duration: 01h48minHefnendurnir fagna fimmtugsafmælinu með extra löngum þætti þar sem Hulkleikur og Ævorman ræða um pavlóvur Schrödingers, geimveruglannaskap og miðaldra laugardagsgrínista áður en söngkonan og kynjapælarinn Anna Tara Andrésdóttir mætir í heimsókn til að hirta þá og fræða um leyndardóma skuggana fimmtíu.